Líf pakistanskra kristinna flóttamanna í Malasíu

Þúsundir kristinna neyðast til að yfirgefa Pakistan vegna trúarofsókna og flytja til Malasíu, þar sem þeir leita hælis hjá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR). Þar búa þeir við erfiðar og ótryggar aðstæður á meðan þeir bíða eftir að verða endurbúsettir í öruggu þriðja landi, en sú bið getur tekið mörg ár.

Á meðan hafa þeir ekki leyfi til að vinna, hafa ekki aðgang að nauðsynlegri læknisaðstoð og börn þeirra geta ekki gengið í skóla. Þeir lifa í stöðugum ótta við að verða handteknir af malasísku lögreglunni vegna þess að þeir eru taldir dvelja ólöglega í landinu. Malasía hefur ekki undirritað flóttamannasamninginn frá 1951 og yfirvöld þar í landi viðurkenna ekki hælisleitendaskírteini sem Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna gefur út sem gilt dvalarleyfi.

Þú getur hjálpað þessum ofsóttu bræðrum okkar og systrum í trúnni í gegnum samtök okkar, Protecting Persecuted Christians, sem eru löglega skráð góðgerðarsamtök í Kanada og Hollandi.

Frekari upplýsingar og möguleika á að veita aðstoð má finna hér:

https://ofsottirkristnir.is/styrkja/

Deila færslunni:
Líkar þér við færsluna?

Tengdar færslur