Aðstoð við fórnarlömb guðlastslöggjafar
Löggjöf Pakistans um guðlast er alræmd fyrir það hvernig hún hefur verið misnotuð gegn kristnu fólki. Á undanförnum árum hafa margir fátækir og saklausir kristnir einstaklingar verið ranglega sakaðir um guðlast, sætt pyntingum og jafnvel verið drepnir vegna slíkra ásakana. Guðlastslöggjöfin hefur orðið að hættulegu tæki sem meðal annars er misnotað til að ofsækja kristna minnihlutann, útkljá hversdagslegar deilur, hefna persónulegra harma eða ná yfirráðum yfir eignum.
Þegar einstaklingur er sakaður um guðlast og sá sem sér fjölskyldunni fyrir framfærslu er settur í fangelsi getur öll fjölskyldan staðið eftir hjálparvana við mjög erfiðar aðstæður. Við aðstoðum fólk sem neyðist til að yfirgefa heimili sitt og fara í felur vegna rangra ásakana. Við styðjum einnig fjölskyldur þeirra sem eru í haldi og aðstandendur sem eiga á hættu að verða fyrir hótunum, ofbeldi eða ofsóknum vegna tengsla sinna við hinn sakaða.